Frá vínsmökkun til stóra kokksins og stóru konunnar hans

Mér finnst ekki leiðinlegt að sitja hér í hraglandanum og rifja upp dagana á Ítalíu en ætla að láta þessa færslu duga, (sjá; bloggari skipti um skoðun í lok færslunnar) því að nú fer næsta ferð að færast nær á dagatalinu og undirbúningur að hefjast. En á hjólaleiðinni frá Veróna til Visenza er ein brekka - á leiðarlýsingunni segir að brekkuræfillinn sé þriggja kílómetra langur - og það er reyndar alveg rétt. Fyrst ber þó að geta þessa að brekkan er alls ekki brött og stór hluti af þessum þremur kílómetrum er næstum sléttur. Brekkan þessi hefur þó oft reynst ógnandi í umræðunni og þegar að henni kemur er ótti manna og kvenna í hámarki. Það sem fólk hefur þó huggað sig við er að í miðri brekkunni er tekin kröpp beygja til hægri, hjólað niður smáspotta og þar er farið í vínsmökkun hjá fallegustu og yndislegustu vínbændum Veneto. Þar sitjum við, smökkum nokkrar tegundir vína bóndans, horfum yfir vínekrurnar og svo fylgja þau okkur í gegnum víngerðarhúsið. Bara yndislegt og brekkan verður eintóm skemmtun eftir þessa heimsókn. Á brekkubrún er pizzaveisla og þaðan er nær viðstöðulaus niðurbrekka til bogarinnar Visenza sem er fræg fyrir arkitektúrinn hans Palladio.... En á morgun mun ég segja frá stóra kokkinum og stóru konunni hans - sé það núna að þau þurfa hreinlega eina stóra færslu...kv. KE

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórður Ingi Bjarnason

Sæl

Þetta var góður þáttur hjá þér í morgun á rás 1.

kv

Þórður Ingi

Þórður Ingi Bjarnason, 28.6.2008 kl. 16:16

2 identicon

takk kærlega fyrir það Þórður Ingi - svo er nú að leggja eyrun við tækið að viku liðinni. kv. KE

kristín einarsdóttir (IP-tala skráð) 28.6.2008 kl. 16:40

3 Smámynd: Soffía Valdimarsdóttir

Já þú ert alltaf krúttleg á RÚV - en reiðhjól og áfengi, fer það vel?

Man eins og gerst hefði í gær þegar ég reyndi að hjóla heim kl. 7 að morgni eftir afar vel heppnað sukk og svínarí. Reyni það aldrei aldrei aftur.............

Soffía Valdimarsdóttir, 28.6.2008 kl. 20:26

4 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Nei, hefði einmitt haldið að vín og vegahjólreiðar færu ekki saman!?

En skildi það vera tilviljun að allar þessar borgir sem hjólað er til og frá milli vínsælunnar, byrja allar bara á v?

En alltaf heyrir maður nú eitthvað nýtt!

"Brekka sem er næstum slétt"?

Ja, ég hef heyrt talað um slettirekkur, en ekki slettibrekkur!

(jájá,veit, bara eitt k í slettireka, annst þetta bara svo sniðugt!)

Og ein ferð enn já!

Mikið hlýtur þú að vera hamingjusöm ung stúlka fröken hjólaferð!?

Magnús Geir Guðmundsson, 28.6.2008 kl. 20:45

5 identicon

halló, halló - hér er mikill misskilningur í gangi, rætt er um vínSMÖKKUN, en ekki drykkju, hvurslags sveithallærismennska er þetta eiginlega, við hjólagarpar smökkum pent, hristum glösin, rekum nefið ofaní, skoðum hvernig sólin glampar í gegn, ræðum um hvort þetta eða hitt eðalvínið passi betur með grilli eða gourmeti, horfum með upphöfnum snobbsvip hvert á annað og svo dinglum við okkur á hjólunum með sólarvörn númer tuttugu á sólbrenndum nefjunum. kv. Kristín FORVARNARFULLTRÚI gleymið því ekki.

k. einarsdóttir (IP-tala skráð) 28.6.2008 kl. 22:36

6 identicon

Og þið spýtið væntanlega þá víninu sem þið smakkið, eins og alvöru vínsmakkarar, eða hvað?

Ása Ninna Katrínardóttir (IP-tala skráð) 29.6.2008 kl. 08:06

7 Smámynd: Kristín Einarsdóttir

kæra ninna, greini ég Vantrú í þínu svari, ,,eða hvað"? kv. ke

Kristín Einarsdóttir, 29.6.2008 kl. 10:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kristín Einarsdóttir
Kristín Einarsdóttir

Um bloggið

Kristín Einarsdóttir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • fen - fló og barnabörn 186
  • ...e_en_us_320
  • ...ter_edition
  •  b 2 Feneyjar - Flórens (88)
  • ...s_88_522487

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 1026

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband