nú finnast ekki dægrin löng

Jú, ég er komin suður yfir heiðarnar - með frábær viðtöl í farteskinu sem alþjóð mun hlusta á með eyrun límd við tækin í sumar, án gríns. Heimsóknin í Hóladómkirkju var frábær, biskupinn sagði mér sögur af dýrgripum kirkjunnar og ég held bara að ég sé að fá Hólaveikina. Gæti Hólaveikin tekið yfir Ítalíuveikina? Maður spyr sig. Vel á minnst Ítalíufararnir hittust við Sólfarið fagra í gærkvöldi, hjóluðu sem leið lá meðfram sjónum, fylgdumst með öndum á sjónum, kríum í tilhugalífi með tilheyrandi hljóðum, sólarlag og bara almenn sæla. Að lokum fórum við á kaffihús, sumir drukku kakó, aðrir rauðvínstár, spjölluðu, tilhlökkun er (a.m.k. mín) að nálgast hættumörk - sautján dagar. Skil ekki hvernig nokkur maður getur látið slíkar ferðir framhjá sér fara, skil það bara alls ekki.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þráinn Árni Baldvinsson

Hólabiskup hefur ekki átt í neinum vandræðum með fræða um gripi kirkjunnar. Hvaða þátt varstu að vinna?

Þráinn Árni Baldvinsson, 21.5.2008 kl. 22:49

2 Smámynd: Þórður Ingi Bjarnason

Sæl og takk fyrir síðast.   Ekki er slæmt að fá Hólaveikina því hér er alltaf gott að vera.   Nú verð ég að hlusta vel á þáttinn þinn í sumar. 

kveðja frá Hólum

Þórður Ingi

Þórður Ingi Bjarnason, 21.5.2008 kl. 23:27

3 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Ekki búið að fresta þinni hjólaferð, gott er nú það!

En að verðandi Ítalíufarar víli ekki fyrir sér að á á öldurhúsi til að hella í sig rauðvíni, er ekki til eftirbreytni!

Vitiði ekki hvað ölvun við hjólaakstur er stórhættulegur?

Magnús Geir Guðmundsson, 22.5.2008 kl. 00:27

4 Smámynd: Kristín Einarsdóttir

1. sæll Þraínn - fyrst segðu mér ertu alla daga í skólanum norðings? er nebblega að koma í heimsókn og mér finnst að fundur okkar þriggja sé við hæfi.... og biskupinn var ekki í vandræðum og mjög skemmtilegur og frábær - þú verður að vakna eldsnemma laugardaginn 28. júní og stilla útvarpið þitt rétt, ég veit líka að sum bílaverkstæði taka að sér að stilla á rás 1 fyrir fólk....(þetta er fyrsti og e.t.v. eini broskallinn sem ég nota á þessu líklega besta bloggi landsins) sólarglingur

2. Þórður Ingi; takk sömuleiðis - ekki einn heldur þrír - hvorki meira né minna - Hólasveinar verða að vakna snemma þrjár laugardaga í röð, og mæta á frumsýninguna, allt annað en að hlusta á niðursuðu á netinu eða lélegar endurtekningar.

3. Því meira rauðvín því hraðar þeytist fákurinn, nei djók, og mínar ferðir frestast ekki

Kristín Einarsdóttir, 22.5.2008 kl. 01:10

5 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Þetta ætla ég að hlusta á. Ég var gersamlega heilluð af Hóladómkirkju þegar ég kom inn í hana í fyrsta sinn á ferðalagi leiðsögunema um landið.

Steingerður Steinarsdóttir, 22.5.2008 kl. 10:41

6 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Það var bara einhver Moggafrétt um aflagðar hjólaferðir, las hana ekki.

"Finnast ekki dægrin löng" en sól, sól, skín á mig söng nú Hanna Valdís samt forðum og "unaðslegu dægrin löng" sem voru þá ekkert týnd!

En á semsagt að vera skilda að hlusta á þig hjala í útvarpinu?

Sjáum til, kannski tek ég þig bara upp og það ekki í niðursuðu heldur beint í víðómagæðum og ekkert minna stúlka mín!

Magnús Geir Guðmundsson, 22.5.2008 kl. 20:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kristín Einarsdóttir
Kristín Einarsdóttir

Um bloggið

Kristín Einarsdóttir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • fen - fló og barnabörn 186
  • ...e_en_us_320
  • ...ter_edition
  •  b 2 Feneyjar - Flórens (88)
  • ...s_88_522487

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 1022

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband