21.2.2008 | 18:08
fundir og mannfagnaðir
Merkilegt orð ,,mannfögnuður" ... gæti alveg eins þýtt að maður eða kona fagni einum manni. En ég er á mikilli funda- og mannfagnaðarherferð þessa dagana. Nýkomin frá Akureyri þar sem við Heiða sem er unun frömdum dægurþras, sagði frá Smáraskólaverkefninu (ef þú veist ekki hvað ég á við þá er ég undrandi) á myndakvöldi hjá Ferðafélaginu í síðustu viku og aftur í hádeginu í dag hjá á hádegisfundi rótarýklúbbs nokkurs. Svo er ég í kvöld að fara að kynna hjólaferðir á Ítalíu hjá Fjallahjólaklúbbnum....Mér finnst þetta skemmtilegt allt saman, hvað með sínu sniði. Mér finnst mjög gaman að segja frá hálendisferðaverkefni Smáraskola en það er þó tregablandið þessa dagana af því ég fer ekki í fleiri ferðir með þessum frábæru krökkum sem í þeim skóla búa sig undir lífið. En, auðvitað tekur annað við --- stundum þarf að sparka manni yfir brúna. En svo tökum við Alda á móti öllum vinum og vandamönnum, bæði fyrrverandi og tilvonandi í Cintamani búðinni á Laugaveginum á laugardaginn. Kíktu við og fáðu þér kaffi og sjáðu myndir frá Ítalíu .... og drífðu þig svo til Ítalíu að hjóla. kv. KE
Um bloggið
Kristín Einarsdóttir
Bloggvinir
- aslaugh
- gruvman
- fjola
- bjarnihardar
- steingerdur
- meistarinn
- eddabjo
- slembra
- metal
- smarijokull
- kolbrunb
- halkatla
- landsveit
- ranka
- ragnhildur
- drhook
- baldurkr
- hehau
- gurrihar
- juljul
- margretloa
- eyjolfurhressist
- annabjo
- nimbus
- jensgud
- agustolafur
- eddaagn
- ugla
- ingabesta
- folkerfifl
- berglindnanna
- torduringi
- vinaminni
- ingolfurasgeirjohannesson
- paul
- palmig
- fararstjorinn
- peturg
- mariakr
- ipanama
- toshiki
- idno
- maggaelin
- stormsker
- salvor
- stebbifr
- lindagisla
- margretsverris
- kristjanb
- gudridur
- anika-yr
- brandarar
- ernani
- gudjonbergmann
- heida
- hemmi
- omarragnarsson
- einherji
- joklasol
- steinunnolina
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 1166
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hmmm, nokkuð pælingarvert kristín mín, þ.e. þetta með MANN-fagnaðinn. Það leiðir hugan að fleirum slíkum samsetningum eins og MANN-fólk og Mann-skepnur, hverjum datt eiginlega í hug slík eintölufleirtölu pólitík!?En er auðvitað líka til í alvöru "einsmannstölu" haha, MANN-skepna, en nú er ég aðeins farin að bulla!
Magnús Geir Guðmundsson, 22.2.2008 kl. 11:15
Það verða öruggla miklir fagnaðarfundir í Cintamani-búðinni og ég ætla að reyna að líta við.
Steingerður Steinarsdóttir, 22.2.2008 kl. 11:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.