3.6.2007 | 14:14
Barnabarnahjólaferð - fundur
Hæ
Hér var merkur fundur með tveimur barnabörnum og aðstandendum þeirra þar sem umfjöllunarefnið var fyrirhuguð barnabarnahjólaferð um svokallaða Dónarhjólaleið. Þessi tvö barnabörn og tvö önnur - tvær ömmur, einn afi og ein frænka munu hjóla um það bil 200 kílómetra leið frá Scärding við Dóná og til Vínar. Ætlunin er að Úrval-Útsýn selji svona ferðir, ætlaðar ömmum, öfum og barnabörnum næsta sumar, þannig að gott tækifæri er fyrir alla áhugasama að fylgjast náið með þessu bloggi meðan ferðin stendur yfir þann 26. júní til 3. júlí. Þess má geta að barnabörnin eru stútfull tilhlökkunar og nú er ekki hjólað í einhverju tilgangsleysi út um allar trissur heldur fara fram markvissar æfingar.
KE
Um bloggið
Kristín Einarsdóttir
Bloggvinir
- aslaugh
- gruvman
- fjola
- bjarnihardar
- steingerdur
- meistarinn
- eddabjo
- slembra
- metal
- smarijokull
- kolbrunb
- halkatla
- landsveit
- ranka
- ragnhildur
- drhook
- baldurkr
- hehau
- gurrihar
- juljul
- margretloa
- eyjolfurhressist
- annabjo
- nimbus
- jensgud
- agustolafur
- eddaagn
- ugla
- ingabesta
- folkerfifl
- berglindnanna
- torduringi
- vinaminni
- ingolfurasgeirjohannesson
- paul
- palmig
- fararstjorinn
- peturg
- mariakr
- ipanama
- toshiki
- idno
- maggaelin
- stormsker
- salvor
- stebbifr
- lindagisla
- margretsverris
- kristjanb
- gudridur
- anika-yr
- brandarar
- ernani
- gudjonbergmann
- heida
- hemmi
- omarragnarsson
- einherji
- joklasol
- steinunnolina
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.2.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ægilega er þetta smart ferð - ætli maður skelli sér ekki á fákinn og láti vindinn leika um lokkanna. Fylgist með .
helga Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 3.6.2007 kl. 17:48
Kæra Kristín. Heyrði í þér í útvarpinu í dag. Ferlega er þetta fínt hjá þér, ég vissi ekki að þetta væri barnabarnaferð. Bíddu við, erum við ekki svo ungar
Nú ætla ég að fylgast vel með þér, og þessu uppátæki þínu. Þú kemst þá ekki í morgunkaffi á laugardaginn kemur, látum verða af því seinna.
Kristín Magg
Kristín Magnúsar (IP-tala skráð) 4.6.2007 kl. 10:26
Skelli mér með Helgu á fáknum. Annars hef ég ekki hjólað síðan ég var unglingu, getur þú tekið mig í æfingaprógramm? Annars er þetta alveg frábært hjá þér. Engum öðrum en þér myndi detta þetta þetta í hug. Fylgist með hvernig gengur.
Góða ferð
Unnur B
Unnur Baldursdóttir (IP-tala skráð) 4.6.2007 kl. 10:35
Hæ Helga og Unnur - ef ykkur hefur ekki enn áskotnast barnabörn er reynandi að taka annarra manna börn með. Eða vera bara barnalegur sjálfur sem er nú skemmtilegt.
ég vonast til að fá komment frá ykkur á hverjum degi
kv. Stína
Kristín Einarsdóttir (IP-tala skráð) 4.6.2007 kl. 10:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.